AArrrgggg
prentarinn virkar ekki. Það kveiknaði á honum áðan en núna er hann
dag. Fyndið þegar maður fer í bæinn og hittir einhvern starfsmann
bara ekki tekið inn svona risa töflur, svo ég losa duftið úr
belgjunum í skeið og set smá vatn saman við og reyni að koma þessu
Brjóstavesen...:(
fengu að sjá mig aftur. Fékk nefnilega hita á mánudaginn en lét
nægja að hringja uppá FSA og þær sögðu mér að taka verkjatöflu og
reyna að halda hita á brjóstunum. Svo á þriðjudeginum var ég enn
með hita svo ég fór uppeftir og fékk verkjatöflu þar og fór í
mjaltavélina, og hitinn snar lækkaði. En á miðvikudaginn var ég
aftur komin með hita og fór aftur uppeftir og það var gert það
sama. Svo átti ég tíma hjá Ragnheiði í gær en þá var líka þessi
skemmtilega vakt, Edda og Inda og þær létu mið enn einu sinni í
mjaltavél og svo handmjólkaði Inda mig, ójá ekki mjög þægilegt skal
ég segja ykkur, og ég var að lokum sett á sýklalyf. Og vonandi þarf
ég ekki að fara uppeftir í dag. Við erum búin að tala við prest til
að skíra þann stutta og það verður gert 29.des, þegar Rósa Kristín
á afmæli. En ég ætla að fara að sinna prinsinum svo Ævar geta nú
sofnað...
komin heim með lítinn prins
5.des, hann var 10merkur og 46cm, og brúnn og sætur. Set inn myndir
vonandi sem fyrst. Annars gekk fæðingin mjög vel, var sett af stað
um kvöldið, stíllinn var settur upp svona kl 23, og ég byrjaði að
fá verki aðalega samt í bakið og svo missti ég vatnið svona kl 3 og
ég lét hringja í Ævar kl 5:30 og strákurinn var fæddur 7:05. En það
var samt búið að láta mig vita að þetta gæti gengið svona hratt því
líkaminn minn myndi reyna að flýta sér að losna undan
meðgöngueitruninni en þær voru samt ekki alveg að trúa því að þetta
væri að gerast þarna um nóttina því oftast fá konur stíl að kvöldi
og annan svona um 6 leitið og svo er oftast belgjarof um 10 að
morgni, en þetta gekk allt svo vel, vona samt að það sé rétt að
verkirnir séu verri í svona hraðri fæðingu því þetta var alveg
rosalegt, en ég hefði nú viljað sjá og heyra í mér því ég bullaði
svo mikið. Ég er samt alveg rosalega ánægð með Eddu sem tók á móti
litla stráknum mínum, ég hefði ekki viljað hafa neina aðra
ljósmóður því Edda er svo frábær, og hún hefur ef til vill skemmt
sér í þessari fæðingu því hún sagði mér margt fyndið sem ég lét út
úr mér þarna inni. Ævar stóð sig rosalega vel, þessi elska hvatti
mig áfram og hélt í hendina á mér. En nú hefur maður svo lítinn
tíma, reyni að skrifa fljótt aftur...
Bæjarferð
meðgöngueitrun. Fékk reyndar að fara í bæjarferð á laugardaginn og
nú veit ég hvernig föngunum líður sem sleppa út úr fangelsi, það
var mjög ljúft að komast aðeins út og heim. Núna fékk ég aftur að
fara út því það eru svo miklar framkvæmdir uppá fæðingardeild og
hávaðinn alveg rosalegur svo þau sögðu að ég myndi hvílast betur
heima. En annars er blóðþrýstingurinn 140/90 og +++ í eggjahvítu og
3.stofunni, með stelpu sem er komin 8 daga fram yfir, og fer ef til
svona út á daginn á meðan þeir eru að bora og negla þarna uppfrá!
Svo verð ég að monta mig því ég of Ævar trúlofuðum okkur á
fimmtudaginn 10/11 05. Settum upp hringana uppá sjúkrahúsi, vorum
búin að plana út að borða og læti en neinei, ég fékk ekki að fara
út af sjúkrahúsinu, ég var nú ekki sátt að fá ekki að vera
einhversstaðar annarsstaðar en uppá fæðingardeild en við brosum
bara að þessu svona eftir á. En Ævar minn, ég elska þig mest og
Þriðjudagur
ekki í vinnuna fyrr en kl 12, því ég var send uppá FSA. Þar fór ég
í mónitor, sónar og blóðprufu. Ég má ekki vinna og á að koma aftur
á morgun og þá kemur endanlega í ljós hvort ég fari eitthvað aftur
í vinnuna. En í sónarnum sagði hún að barnið þroskist eðlilega og
það væri bara soldið lítið en þar sem við erum bæði frekar smá þá
er það alveg allt í lagi, en ég var mjög ánægð að vita að barnið
íbúðina og þá varð ég nú soldið reið. Ég fór áðan niðrá Akureyrabæ
og maðurinn ætlaði að tala við þennan mann sem býr í næstu íbúð og
er að fara að koma mér heim. Ævar er að vinna, þessi elska. Hann
vinnur alltaf svo mikið, frá 7-19. Ég var samt búin að hita
kakósúpu handa honum í hádeginu og svo fær hann lasagne í
kvöldmatinn. En hann er samt alltaf svo duglegur heima þótt hann
Hvíld, takk!
fara í eitt, og það er hvíld! Ljósmóðirin sagði við mig í gær að ég
ætti að liggja alla helgina og vera mjög löt og ekki gera neitt,
koma svo aftur til hennar á mánudaginn og taka veikindadag í
vinnunni á mánudeginum því það er allt að benda til þess að ég sé
að fá meðgöngueitrun:( ekki gott!:( Mamma og pabbi eru komin á
Akureyri að ná í nýja bílinn, rosa flottur jeppi, beint úr
kassanum!:) Ævar er að vinna á laugardaginn þannig að hann getur
ekki stjanað við mig, hann fær að gera það á sunnudaginn í
staðinn!:)
8 vikur eftir;)
fór í mæðraskoðun á þriðjudaginn og legbotnshæðin hækkaði bara um
1cm og blóðþrýstingurinn var sá sami og síðast. En ég var svo veik
um síðustu helgi að þetta er kannski ekki alveg að marka, var með
ælupest og líkaminn var gjörsamlega orðinn tómur, ég ældi svo mikið
og fékk 38° hita. En er búin að losna við alla þessa veiki og er
orðin hress í dag. Fer samt til læknis á morgun og svo aftur í
mæðraskoðun á fimmtudaginn eftir viku. En ég er búin að taka
ákvörðun um að ef allt gengur vel þá vinn ég bara út nóvember og
fer þá í frí. Ég held að það sé nú bara pastlegt. Ævar er í fríi um
helgina og Bjarni er hjá okkur svo við eigum eftir að gera eitthvað
sniðugt þessa helgi. Það er alltaf svo gott þegar Ævar þarf ekki að
vinnu um helgi. Dagurinn í dag byrjaði nú ekki nógu vel, bíllinn
var rafmagnslaus og við ætluðum af stað rétt fyrir 7. Þar sem
enginn vildi vera vakandi og gefa okkur start, biðum við til 7:40
og þá kom bjargvætturinn hún Brynhildur og við komumst af stað. Svo
í fyrradag þá kom ég heim úr vinnunni og fann skrýtna lykt á
hæðinni hjá mér, svona bruna eða sviða lykt en hún var samt ekki úr
íbúðinni minni svo ég var ekkert að pæla meira í því. Svo var
bankað um kvöldið og spurt hvort lyktin væri nokkuð úr okkar íbúð
og ég sagði náttúrlulega nei. Svo stuttu seinna var bankað á fullu
og dinglað á fullu og ég fór til dyra, þá var lögreglan og
slökkvuliðið mætt og þeir spurðu hvort þeir mættu fara yfir í næstu
íbúð frá svölunum því enginn opnaði í næstu íbúð, og þá var næsta
íbúð full af reyk og maðurinn bara sofandi í íbúðinni, (örugglega
áfenginsdauði) en það var samt ekki kviknað í, bara allt fullt af
reyk. Það tók mig líka smá tíma jafna mig því mér brá ekkert smá
þegart ég sá lögguna og slökkvuliðið fyrir utan. En þetta
bjargaðist allt saman. En jæja ég ætla að fara að fá mér vatn, og
reyna að gera eitthvað hérna...Birna
9 vikur eftir...
Fer næst í mæðraskoðun á þriðjudaginn og vonandi er legbotnshæðin
orðin meiri en síðast og blóðþrýstingurinn ekki eins hár. - annars
gengur allt vel, vinn ennþá til 5 en er samt farin að huga að því
að minnka við mig. Það er nú samt svo gaman í vinnunni að ég vinn
örugglega út nóvember, nenni ekki að sitja ein heima og gera ekki
neitt. En ætli ég fari ekki að reyna að gera eitthvað í þessari
vinnu... það er nú samt voða lítið að gera. Birna...
Er á lífi...
vel, ég er samt orðin mjög þreytt og er líka búin að vera veik, með
kvef og hálsbólgu en það eru bara 10 vikur eftir svo þetta
styttist. Ævar verður að vinna alla helgina en ég og Bjarni finnum
okkur eitthvað að gera! Svo er skírn næstu helgi 23.okt, þá verður
litla skottan þeirra Víglundar og Gauju skírð og Brynhildur á líka
afmæli, og ég ætla að borða mikið í þeirri veislu. Annars eru
eiginlega allir dagar hjá mér eins, vakna með Ævari og fara með
honum niðrí Rúmfó, keyra heim, horfa á TVið, fara í vinnu, labba í
Rúmfó að ná í bílinn, fara heim, borða og fara svo að sofa. En ætli
maður fari ekki að reyna að gera eitthvað hérna... ég skal ekki
láta líða svona langan tíma í næstu færslu...:) Birna...
Laugardagur:)
vinnu kl 12! og það fannst mér ekkert sniðugt, hefði sko viljað
hafa hann bara heima! En við Bjarni skemmtuðum okkur bara 2 heima á
meðan! Annars er voða lítið að frétta, ég og Bjarni kíktum á
Gunnhildi, Elmar og Fanney í gær á meðan Ævar var í vinnunni, hún
Fanney er sko algjör rúsína! Svo var pizzu party hérna hjá okkur í
gærkvöldi, Brynhildur, Hafdís, Elvar, Vignir og Jónas komu og það
var pöntuð pizza og horft á Latabæ!:) Skúli bróðir er sko ekkert
smá duglegur, fékk vinnu uppí Esso á Blönduósi og er bara farinn að
vinna á fullu! En jæja hef ekki fleira að segja í bili, ætla að
fara að leggjast uppí sófa, því ég er gott sem að springa!
Mánudagur...
annars var þetta nú barasta ágætis helgi. Hulda, Friðgeir, Rósa
Kristín og Skúli fengu að gista hjá okkur laugardags nóttina því
það voru allir mættir á svæðið í skírn hjá litlu hennar
Skírnin fór fram í Akureyrarkirkju og var sú stutta skírð Fanney
Björg!!!! Svo var haldið uppí Sunnuhlíð því þar biðu kræsingarnar
Hulda og co komu með barna bílstólinn sem við keyptum á barnalandi,
nenna að vakna og skutlast með Ævari kl:7 í morgun, en ég fór...
við héldum samt að barnið kæmi 11.sept en það gerðist ekki svo við
vakna 5:30..:( ekki gaman, en ég fer bara heim aftur og legg mig í
Föstudagur 9/9´05
sko eftir að vera skemmtileg helgi, Hulda, Friðgeir og Rósa Kristín
koma á morgun og gista hjá okkur, því það á að skýra litlu hennar
Gunnhildar! Ég á svo örugglega eftir að borða geðveikt mikið í
veislunni því matarlistin hjá mér er alveg ótrúleg, ég get borðað
endalaust! En annarst þá gengur meðgangan vel, og þarf ég endilega
að setja upp myndasíðu þar sem næstum allir eru farnir héðan frá
Akureyri:( en það voru bara 15 vikur eftir í gær. -og já, gaman að
sjá að það er ennþá fólk að kíka inná síðuna og ætla ég nú að reyna
að vera duglegri og skrifa oftar! En ég ætla að halda áfram að
vinna;)
Langt síðan síðast!;)
ansi margt gerst hjá mér... ég er flutt á Akureyri í mína eigin
íbúð, vinn á pósthúsinu hérna, búin að skipta um bíl, komin sko á
ekta fjölskyldubíl, Subaru Legacy...er ólétt...jej, er skráð inn
22.desember og meðgangan gengur sko vel, hef ekki misst úr einn dag
í vinnunni!:) Ég og Ævar erum búin að koma okkur vel fyrir þarna
uppí Smárahlíð og hlökkum sko til í desember þegar krílið fæðist.
Svo er Gunnhildur búin að eiga, átti stelpu, algjör dúlla! Og vá
hvað það er langt síðan ég fór á Blönduós og það er svo langt síðan
ég hitti alla! Þið verðið að bjalla í mig þegar þið komið á
Akureyri... Verð að fara að vinna...
enginn titill;)
ég hef verið einhvers staðar allt annars staðar en í þessu partyi,
man bara eftir einni mynd og það er myndin af mér þar sem ég var
elda mér og læra smá fyrir íslenskuprófið sem er á föstudag...og
já, Bogga Blö hringdi aftur og var bara að spurja hvort ég ætlaði
verður samt örugglega ekki fyrr en ég er búin í prófum því ég ætla
Helgin var geðveik...
baki! Þessi helgi var reyndar geðveikt skemmtileg...túttuparty á
Stóru-Giljá og svo ball með Skímó í Miðgarði. Ég fór á bústaðinn um
16:30 og þá voru bara Marsibil og Kristín komnar, við byrjuðum svo
að drekka og segja sögur og svo gekk nú ekki nógu vel að láta renna
í heitapottinn svo ég hringdi niður á Stóru-Giljá og kallinn kom
bara og reddaði þessu fyrir okkur. Ég fór svo með Ömma, Sigga og
Guðjóni á Bakkann og hitti Elínu og einhverja og svo kom
langferðabíllinn og við fórum í Miðgarð...þetta var bara fínt ball,
hitti alveg helling af fólki og allir voru að skemmta sér þarna.
Svo var haldið heim á leið og Eva var alveg að brillera þarna og ég
sat ein útí horni og Tinna og Bryndís voru ekkert til í að tala við
mig. En ég varð bara eftir á Blönduósi því mér leið ekkert sérlega
vel...fór svo með Gilsa daginn eftir að kíkja á liðið þá kom hver
snilldar setningin á fætur annari og miklar pælingar um hvað gilj
væri og hvort áin hefði verið skýrð í höfuðið á bænum...og já svo
hringdi Kolbrún brjáluð og sagði okkur að koma með símann sínn sem
einhver hefði átt að hafa stolið í miðbæ rvk um nóttina!:) og já ég
og Kristín grilluðum hamborgar fyrir liðið og svo var bara gengið
vakna til að fara í íslensku þar sem kellingin ætlaði bara að vera
ef við værum með einhverjar spurningar svo ég hélt áfram að sofa...
svo hringdi Bogga Blö í mig útaf mætingu og eitthvað og hún ætlar
að tala við kennarana mína og hjálpa mér í gegn, svo fór ég í
efnafræði og brilleraði alveg þar og þá reyndi Bogga að hringja
aftur veit ekkert hvað hún ætlaði að segja en svo var komið að
þýskunni og við fengum að vita út úr munnlegaprófinu og ég fékk
9,4!! þetta er held ég hæsta einkunn sem ég hef fengið í
framhaldsskóla! svo ætlaði ég að vera geðveikt dugleg og mæta í
körfu en þú bara mætti enginn og ekki einu sinni kennarinn svo ég
rúntinn eða eitthvað! En það er munnlegt próf í dönsku á morgun